Bloggar | 8.6.2006 | 23:41 (breytt 10.6.2006 kl. 02:42) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
jæja, ég var að fá einkunnirnar mínar úr endurtökuprófunum. Ég náði lesna prófinu en ekki ólesna. Ég held ég grípi til þeirra örþrifaráða að flytja mig yfir á máladeild. Sem þýðir að ég þarf að læra latínu í sumar og þarf að taka latínupróf og próf í enskum stíl í haust. Það er allavega víst að ég fer ekki í annan skóla! Ég ætla ekki að líta á þetta sem heimsendi eins og mamma og Beta bendu mér á. Ég ætla bara að líta á þetta sem mín einkennilega heppni í óheppninni því að í rauninni er þetta fall góður hlutur. ég er mun betri í tungumálum en raungreinum. Ég hlakka bara til að joina latínukrakkana
hér fann ég myndasögu á latnesku..held ég
verð að fara..
kv. Heiða latinagirl
Bloggar | 7.6.2006 | 13:42 (breytt kl. 13:42) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Ég og Ragna skelltum okkur í Sporthúsið í gær. Það var tremma gaman að vanda. Er við höfðum verið að lyfta í smástund labbaði Gillz nokkur í áttina að okkur, horfði og sagði svo: "Hækkiði sætið aðeins upp stelpur!". Síðan labbaði Gillz að næsta tæki þar sem 10x massaðri gaur en hann beið eftir honum (hefði viljað sjá gaurinn svara í símann!). Í dag var svo Gillz aftur þarna. Sá hann útundan mér dissa svona 20 ára strák sem var að lyfta. Sko. Þó hann sé massaður, skrifi einhvern hundleiðinlegan dálk í DV og einkaþjáflari þá á hann bara ekkert með það að labba um eins og kóngur dissandi fólk í hvívetna.
Annars er ég að fara í nokkra daga frí frá vinnu. Ef það er einhver þarna úti sem er líka í fríi má sá hinn sami gefa sig fram. Ef ekki, þá verð ég bara ein heima að sauma buxur sem ég byrjaði á sumarið 2004. Þær verða flottar, ef þær verða ekki "so 3 years ago" þegar þær loksins verða tilbúnar.
Heiða, Katrín, Urður, Haraldur og fl.....til hamingju með daginn :)
Góður dagur til að ljúka prófum, 06.06.06, boðar það gott?
Kv. Bára
Bloggar | 6.6.2006 | 19:50 (breytt kl. 19:59) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jæja..þá eru bæði prófin búin. Ég fæ að vita úr lesna eftir einn og hálfan tíma! Ólesna prófið var svona upp og ofan. Ég gat leyst það sem ég átti að kunna, hitt var svona bæði og. Vona bara að ég nái..ég VERÐ að ná! Annars fer ég að grenja í rektor um að leyfa mér að taka þetta aftur í haust. En ég vil ekki hugsa um það núna. Núna hugsa ég bara PRÓFLOK!
Núna get ég loksins farið að vinna eins og mófó
og planað barcelona ferðina
. Það eru 18 dagar í barcelona, ég hlakka svo til!
En jæja..ég er farin að ..gera ekki neitt!
kv. Heiða
Bloggar | 6.6.2006 | 12:54 (breytt kl. 12:54) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
jæja..þá er ég búin að taka eitt endurtökupróf, lesna stæ Það er sjaldan sem ég hef verið svona stressuð! Ég er alveg viss um að ég nái, en það verður ekki góð einkunn. En þá er það bara ólesna stæ sem er eftir..ég kvíði meira fyrir henni
En ég nenni ekki að tala um það. Ég ætla að segja ykkur frá því hvað ég er samviskusöm og góð manneskja
Það byrjaði allt með því að ég fékk í pósti launaseðil frá Orkuveitunni. Ég varð mjög hissa þar sem ég er ekki einu sinni byrjuð að vinna þar, byrja á miðvikudaginn. Ég hélt þá að þetta gæti tengst e-ð seinasta sumri og opnaði þá póstinn. Þar stóð að ég hefði fengið nálægt 100 þús kjell útborgað. Það var auðvitað svoldið skrítið þannig að mér datt í hug að þetta gæti bara verið mistök, en innst inni óskaði ég þess samt ekki. Ég, sem er svo samviskusöm, hringdi þá í Orkuveituna og tékkaði á þessu. Það kom í ljós að þetta voru bara mistök, ég átti alls ekkert að fá þennan pening. Þá sagði konan að þetta yrði bara dregið frá næstu útborgun ef ég vildi og ég, sem var í smá sjokki, sagði bara "jájá" þar sem ég þarf að borga Barcelona ferðina.
þarna hafiði það, skýr frásögn um það hversu samviskusöm ég er. Þótt þetta sé svekkjandi, þar sem mig langaði rosalega bara eiga peninginn, er ég viss um að karmað mitt hvað sem þetta heitir verði bara betra fyrir vikið. hver segir að karma sé ekki betra en peningar!?
jæja..verð að fara..er ekki frá því að ég sé orðin smá bitur eftir að segja þessa sögu
kv. Heiða englastelpa
Bloggar | 2.6.2006 | 14:44 (breytt kl. 14:44) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Jæja..ég hef aldrei skrifað hérna áður:P ég vissi ekki einu sinni að þetta væri breytt! En jæja, þar sem ég sit hérna heima við tölvuna að taka mér smá pásu frá stærðfræðinni ákvað ég bara að láta heyra í mér
Svo er nefnilega mál með vexti að ég féll já féll í báðum já báðum stærðfræðiprófunum, þe ólesinni og lesinni!
Það sökkar frekar mikið en ég kýs að líta á það þannig að nú mun ég bara kunna meira í stærðfræði í 5.bekk
þannig að þetta er eins konar lán í óláni! Ég er ekkert voðalega stressuð, allavegta ekki strax. Ég tek lesna endurtökuprófið á föstudaginn en ólesna eftir viku. Það sem böggar mig mest er að ég missi svo mikið úr vinnu og ég þarf á öllum peningum á að halda fyrir Barcelona!
Kannski ég stofni bara svona söfnunarreikning
nee, það væri kannski einum of...eða hvað??
Svo er eitt annað sem ég ætla að tjá mig um. Ég, Aðalheiður Dögg Finnsdóttir, ætla ekki að drekka þangað til í Barcelona þar sem ég fór í tjaldferð um daginn, nema ég man ekkert úr henni! ég hefði alveg eins getað verið sofandi heima hjá mér. Ég vil ekki lenda í svona aftur og hef þess vegna ákveðið að draga mig í hlé en engar áhyggjur, ég mun samt djamma sem aldrei fyrr, bara algjörlega edrú!
En jæja..nú er ég búin að tjá mig nóg
kv. Heiða
Bloggar | 30.5.2006 | 13:49 (breytt kl. 13:49) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Á laugardaginn fékk ég kosningarétt, á sjálfan kjördag. Samkvæmt mínum bestu heimildum var ég ein af sjö sem fékk kosningarétt 27.maí og því sjá glöggir að við erum 7 úr '88 árgangnum sem eiga afmæli besta dag ársins. Ég þekki samt bara mig. Ég ákvað að fara snemma á kjörstað og kjósa 17 þar sem ég kom í heiminn um kl 16 fyrir 18 árum. Brjálað bögg á kerfið að kjósa 17!
Afmælisdagurinn var í heild bara heví næs. Fyrir einhverjum árum ákvað ég reyndar að fara í fallhlífarstökk þegar ég yrði 18, en sökum þess að ég er að spara fyrir Barcelonaferð ákvað ég að leigja bara klám. (nei ojj)
Ég vil óska afmælisbörnum vikunnar, Benediktu, Benna, Evu frænku, mér, Katrínu Hjalta og bráðum Marínó til hamingju með daginn!
Í tilefni gleðinnar setti ég inn myndir frá seinustu gleði - Tjaldferðinni! Þið finnið myndirnar hér niðri til vinstri. Um næstu helgi verð ég svo með vélina á lofti enda stuð framundan. Sjáumst þá
Kv. Bára
P.S. Myndin við færsluna er næsta Carlsberg auglýsing.
Bloggar | 29.5.2006 | 13:29 (breytt kl. 13:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Jæja! Nú nálgast próflok. Í því tilefni er hin margrómaða 4.bekkjarferð. Ég veit þið bíðið öll spennt því að dagskrá og áfangastaður hefur ekki enn verið gefinn upp. En ég veit allt og ætla hér með að opinbera allt.
14. 00: Lagt verður af stað frá MR og keyrt út á Reykjavíkur flugvöll. Þaðan fljúgum við til Keflavíkur, vegna þess að við verðum ekki í ástandi til að keyra.
15:00 Komin inn í Leifstöð. Þar bíða okkar flugþjónar og flugfreyjur sem munu þjóna öllum árganginum ásamt því sem Red Hot Chili Peppers munu taka fáein lög og kynna nýju plötuna sína.
16.30. Stigið um borð í Lúxus, einkaþotu sem flýgur með okkur til Rimini á Ítalíu. Þar verður búið að leigja heilt flottasta hótelið í bænum.
Engin sérstakur áætlaður komu tími er, enda skiptir það ekki máli. Hver nennir að spá í tímanum þegar hann hefur fullt annað að gera? Á hótelinu er 24/7 bar og diskósund allan sólarhringinn. 37 rennibrautir eru í garðinum og naktir sundlaugarverðir. Ströndin er svo í bakgarðinum. Restin af ferðinni er uuu.....óráðin....
Þið sem hélduð að þið væruð að fara í Tjaldferð.......tekin, tekin, tekin tekin, tekin!
Ég vil óska 4.bekkjarráði til hamingju með þetta góða Tjaldferðardjók.
Kv. Bára.
Bloggar | 16.5.2006 | 15:47 (breytt kl. 15:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þið kannist öll við þetta. Í prófum er endalaust af hlutum sem maður finnur upp á að gera frekar en að læra. Þegar ég var búin að fara út á línuskauta og láta Rögnu draga mig á bensinum; þegar ég var búin að tromma eina taktinn sem ég kann í korter; þegar ég var búin að láta mig detta 3svar beint á fésið í rúmið hans Rúnars; þá fann ég síðu á netinu. Síðan segir að ég líkist manninum að neðan. Nei! Hvur andskotinn.....
Mín skoðun: Rosalega er ég svöl!
Þín skoðun: ?
Kv. Bára
Bloggar | 13.5.2006 | 19:46 (breytt kl. 19:58) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Eftir prófin, verður síðan tekin í notkun á fullu. Blogg um sumar og sól, partý og gleði, ferðalög og upplifanir. Akkúrat til þess var og ER Cerasum....
OMG, geðveikt kúl
...stay with us , stay with Cerasum!
Bloggar | 30.4.2006 | 23:58 (breytt 1.5.2006 kl. 21:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Tenglar
Eldri Myndir
- Grímuball 2005
- Árshátíð Skólafélagsins
- Embó
- Big Ben Bangsi Benni á Öskudaginn
- Trambólín fjör Tekið í júní 2005 á afmælisdag Þórunnar
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar