ljóskusaga

Jæja, alltaf jafn lítið að gera hérna í Orkuveitunni eins og sést á Barcelonasíðunni minni(www.heidadogg.blog.is). Þar er bara eitthvað vinnu crap Ullandi En það breytist þegar við förum út Brosandi Áðan fór ég í mat, eins og ég skrifa svo oft um, og það var í fyrsta sinn sem ég smakkaði góðan fisk hérna! það var einhvers konar saltfiskur, nema bara góður. Veit að sumir trúa þessu ekki, en ég sver! Það virðist vera að það eina sem ég get talað um eru matarhléin hérna í OR. En hér kemur ein frásögn úr matarhléi af okkur Heiðu Björk og hvað við erum miklar ljóskur.

Ég og Heiða Björk fórum niðrí mat. Hann byrjaði bara vel. við settumst niður með okkar grænmetislasagne (skiptar skoðanir eru á hversu gott það var) og byrjuðum að borða þegar allt í einu breyttist svipur Heiðu Bjarkar og hún tók út úr sér eiithvað sem virtist vera eins konar armbandarperla (stelpur þið vitið eflaust hvað þetta er). Skyndilega fann hún aðra..og aðra..og aðra. Þá sáum við að maturinn hennar var allur löðrandi í þessum armbandsperlum! Ég fór þá að skoða matinn minn en fann enga perlu. við komumst þá að þeirri niðurstöðu að Heiða Björk hefði fengið sér að borða úr öðrum "dalli" eins og ég kýs að kalla það. Þegar við ætluðum að fara að kvarta kom systir Heiðu Bjarkar og við söðum henni frá þessarri hrillilegu sögu. Hún leit þá á okkur með svip sem ég hef ekki séð áður og sagði "ertu að meina svona perlur eins og eru í hálsfestinni þinni?" Ég og heiða litum þá á hvor aðra og svo á hálsfestina hennar. hún var gerð úr eins perlum og voru í matnum og hún var einnig slitin. Þá sprungum við úr hlátir í miðjum matsalnum og áttuðum okkur á því að við erum algjörar ljóskur!

Þetta var mjög skondin lísreynsla og vonandi lærði ég eitthvað af henni Brosandi

kv Heiða

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hahaha, ég vorkenni henni smá :S .....ég var að fá mér blogg stelpur fyrir barcelonaferðina! Þið verðið svo kannski að hjálpa mér, ég kann ekkert á þetta:S

það er gerdur.blog.is :)

Gerður Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 13.6.2006 kl. 13:42

2 identicon

Góð saga Heiða, og fín síða dömur. Hafið það gott á Spáni og ég vil segja fyrir mína parta, að þá lærði ég það á þessari sögu að ég ætla ekki að borða mat með perlufesti um hálsinn:)

Einar Þór (IP-tala skráð) 21.6.2006 kl. 21:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband