Nú sit hér uppgefin við fartölvuna. Ekki byrjuð að pakka og flugvélin fer eftir rúma 17 tíma. Seinustu klukkutímunum (og í raun dögunum) er ég búin að eyða í að vafra um netið í leit að hagstæðu flugfari til suður Frakklands í ágúst. Ég er viss um að flugfélögin eru í einhverju samráði. Ef að ég finn ódýrt flug til London þá er flugið frá London til Nice í Frakklandi heeeeví dýrt. Eða öfugt. Hvað er málið? Það er bara ekki eðlilegt að þurfa að borga rúmlega 60þús kall fyrir þetta á "lægstu fargjöldum" að sögn flugfélaganna. Díses. Flugfélög eins og "Cheapairlines" og "EasyJet" eru bara ekki að gera góða hluti. Þetta er í alvörunni ömurlegt....
...en ég held ég verði bara að gefast upp á leytinni að ódýru fari og taka þessu okri - því ef ég gefst ekki upp á ég aldrei eftir að mæta út á flugvöll á réttum tíma á morgun! Mín bíður ekki bara Spánn - heldur líka Jón Gunnar! Kappinn er búin að vera úti í 3 vikur og við höfum mælt okkur mót, við fimm stelpurnar og Jón Gunnar. Jón Gunnar hafði orð á því áður en við fórum út að hann langaði rosalega að kíkja með okkur á hommaströnd rétt fyrir utan Barcelona. Hver veit, hver veit.
Ég hyggst blogga hér á næstu 4 vikum um lífið í Barcelona og koma með heitasta slúðrið og ferðasögurnar.
Bless allir. Kv. Bára
P.S. Það geta allir verið heimsborgarar.
Flokkur: Bloggar | 23.6.2006 | 22:50 (breytt kl. 22:53) | Facebook
Tenglar
Eldri Myndir
- Grímuball 2005
- Árshátíð Skólafélagsins
- Embó
- Big Ben Bangsi Benni á Öskudaginn
- Trambólín fjör Tekið í júní 2005 á afmælisdag Þórunnar
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.