Helgin
ROKKAÐI
Helgina þar á undan var ákveðið að skella sér á Færeyska daga sem eru árlega haldnir í Ólafsvík á Snæfellsnesinu. Aðallega vegna þess að 70% af kunningjum og vinum voru að fara, og vegna þess að þetta er eina helgin sem ég get djammað það sem eftir er sumars. Já! Ég og Þórunn tókum okkur til og skelltum okkur í RoadTrip! Veðurhorfur voru ekki hinar bestu ef litið var útum gluggann hér í Reykjavík rétt fyrir brottför, en hvað stoppar okkur Þórunni? Svarið er: ekkert. Beint eftir vinnu var lagt af stað á litlu bjöllunni. Við fengum símtal á leiðinni þess efnis að löggan var að stoppa alla ökumenn og athuga eftir krökkum með áfengi. Við settum okkur í stellingar og höfðum ekki áhyggjur því við erum orðnar átján;) Nokkru síðar var okkur vísað af veginum þar sem lögreglan var með hunda að tæma nokkra vel valdna bíla. Ein af löggunum gaf sér á tal við okkur og þar sem við sögðum sannleikann með áfengið okkar og vorum ekki með skæting þá máttum við fara. Á meðan allt áfengi var hirt af Kötu og hennar félögum. En við vorum ekki lengi að tjalda þegar á leiðarenda var komið, og fljótt var brúsinn upp tekinn...
Fjörið hófst um leið, og djúsað var fram á morgun! Veðrið var svo fínt og allir svo hressir að ég hef aldrei lent í öðru eins. Maður heilsaði öðrum hverjum manni og lenti á heljarinnar spjalli við þriðja hvern mann. Ég sá samt um það að detta og reif buxurnar mínar og hlaut vont sár á hnén! Leiðir okkar Þórunnar skildu reyndar frekar fljótt, en við vorum alltaf að rekast á hvor aðra og enduðum sem betur fer báðar í tjaldinu okkar. Með tveim öðrum gæjum.Sofið var fram eftir degi og eitthvað reynt að borða. Við ætluðum öll að skella okkur á Grundarfjörð í sund, en þegar þangað var loksins komið hafði laugin lokað fyrir tíu mínútum:/ En við fengum samt að fara í sturtu, það var algjör seivjör! Fanney, Björg og Jóakim komu til Ólafsvíkur sama dag og fjörið tvöfaldaðist um kvöldið! Við Björg komumst að því að við verðum í 14 manna bekk á næsta ári! JESS:D Og talandi um Björgu.. Ef það var einhver sem komst á séns þann daginn.. fjúff. En Basicly, þá var grátið og hlegið og hoppað og skoppað. Enn og aftur var farið að sofa þegar klukkan var að verða sjö. Og þessa nóttina var það annar en Þórunn sem joinaði mig í tjaldinu okkar.
Á sunnudeginum var haldið heim eftir veeeeeeeeeeeeeeel heppnaða helgi! (Fyrir utan það að síminn minn eyðilagðist svo feitast! Sem ég skil ekki því þegar ég fór að sofa var í góðu lagi með hann, en svo sannarlega ekki þegar ég vaknaði). Það er svo klárt mál að ég fer aftur á næsta ári ef stemningin verður önnur eins!! Reyndar voru fréttirnar af hátíðinni ekki fagrar og foreldrar væntanlega tortryggnir, en afhverju tók ég ekki eftir öllu þessu dauða fólki? Eða öllum þessum slagsmálum? Eða öllum þessum fíkniefnamálum?
Mýta.
En núna er ég semsagt í vinnunni, freekar þreytt. Og aaalein, og eeekkert að gera fyrir mig!
Pælingin er að browsa eftir leikjasíðu á netinu eða vera fyndin og klára allt gosið sem er hérna.
Anyways! Takk ALLIR fyrir sjúka helgi ! Og miss you Spain girls :*
Flokkur: Bloggar | 3.7.2006 | 09:49 (breytt kl. 10:03) | Facebook
Tenglar
Eldri Myndir
- Grímuball 2005
- Árshátíð Skólafélagsins
- Embó
- Big Ben Bangsi Benni á Öskudaginn
- Trambólín fjör Tekið í júní 2005 á afmælisdag Þórunnar
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Og stelpur!!! Er ekki Tryggvi G útá Spáni núna?? þarna í nektarmótmælahlaupinu???
RS
Cerasum, 4.7.2006 kl. 17:42
ohhh..ég vildi ad ég hefdi verid tharna!! en jaeja ég er bara hér í midri Barcelona í stadinn ;) Tad er svo margt og mikid búid ad gerast..you wouldn´t believe it!! Bara nokkrir útvaldir fá ad heyra sogurnar..annars er tad bara "what happens in Barcelona..stays in Barcelona" ;)
Í alvorunni..er Tryx í nektarmótmaelendahlaupi?? hehe..aeaeji..bara tíbískt hann :P hehe
en ég verd ad fara..kíkid á bloggid mitt og kommentid endilega, alltaf gaman ad fá fréttir :)
Adiós mis amigos!..Heida
Aðalheiður Dögg Finnsdóttir, 4.7.2006 kl. 19:01
Sakna tin lika Ragna min, kiktu a emailinn tinn;)
Cerasum, 7.7.2006 kl. 17:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.