Jæja
London var æði! Keypti helling af dóti, bara verslað alla daga frá morgni til kvölds. Þá tók við dýrindis matur á flottustu veitingastöðunum! Mojito í fordrykk og hvítvín með matnum;)
Allavega er lífið hér á landi búið að vera fábrotið. Veðrið ógeðslegt og búið að vera í allt sumar, svona leiðindi hafa ekki sést í áraraðir.
En seinasta föstudagskvöld hittumst við Hanna, Sigrún og Þórunn. Við byrjuðum á því að fara á American Style og fórum síðan til Þórunnar og byrjuðum strax að drekka! Halli, Villi, Ingi og Hallli kíktu við til að reyna að fá okkur með í bústað.. en gekk ekki hjá þeim. Samt gaman að sjá þá, fengum að sjá mynd af Inga á g-streng líka, mjög athyglisvert.
Við kíktum á tvo staði áður en haldið var í bæinn og gaman að segja frá því að niðrí bæ hitti ég Frakka! Ég varð svona líka himinlifandi og frussaði útúr mér frönskunni eins og ég hefði ekki gert annað. Ég sagði honum frá vinkonu minni henni Báru sem var útá Spáni núna..
Sagrada Familia!!!! Ég bara: JÁÁÁÁ
En málið var að Bára var að hitta Frakka sem heitir Maximilian, en honum var alveg sama um það. Þá sagði ég honum að ég væri að fara til Frakklands eftir viku! Það fannst honum tilkomumikið! Hann var reyndar verulega óaðlaðandi og ekki bætti það úr skák hvað honum fannst rassinn minn skemmtilegur viðkomu..
Þótt kvöldið hafi endað illa tókst mér að skemmta mér mjög vel, hittum Benna í fyrsta skiptið í langan tíma ofl.
Laugardagskvöldið var bara rólegt uppí sveit í faðmi fjölskyldunnar og vinna á sunnudeginum.
Nóg komið í bili
Lifið heil
Ragna Sif
Ps. Myndir komnar:D
Tenglar
Eldri Myndir
- Grímuball 2005
- Árshátíð Skólafélagsins
- Embó
- Big Ben Bangsi Benni á Öskudaginn
- Trambólín fjör Tekið í júní 2005 á afmælisdag Þórunnar
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hahaha, suri Frakki!! Takk fyrir ad posta tessu a netinu samt...
Cerasum, 19.7.2006 kl. 08:18
Bára? Sure, maður verður að láta alheiminn vita hvað Báran er í alvöru að gera í "spænskuskólanum"...
*ragna*
Cerasum, 19.7.2006 kl. 09:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.