Paris est extraordinaire !

Hæ elskur!

 

Ég kom til Parísarborgar seinasta laugardag. Væntingar mínar voru miklar verð ég að segja, en vá hvað borgin hefur farið fram úr þeim öllum.

 

Þessi borg er engu lagi lík ég er að segja ykkur það. Allar byggingarnar eru ótrúlegar, það er eins og maður sé kominn mörg hundruð ár aftur í tímann.

Notre Dame kirkjan er svo falleg og stór að maður getur ekki einu sinni gert sér í hugarlund hvernig farið var að því að byggja hana fyrir svo mörgum árum síðan.

Þegar ég sá glitta í Eiffel turninn fyrsta daginn fór hjartað oní maga. Að sjá mannvirkið sem ég var búin að bíða eftir að fá að sjá forever, ótrúlegt. Og hann er svo flottur á kvöldin þegar hann glitrar allur.

Við fórum til Versala og það var upplifun. Ég hef alveg farið í svona eldgamla kastala og séð hvernig ríka fólkið bjó fyrir 200 árum, en þetta var ekki eins. Maður sér fólkið alveg fyrir sér með hvítu hárkollurnar og konurnar í kjólunum með korselettin og trégrindurnar undir pilsunum. Lúðvík 14. og það fólk á 17.öld. Imagine.
Þetta risavirki var gulli klætt að innan og fjaðrir og málverk og himnasængur yfir rúmunum og danssalir og huge garður! Engin furða að lýðurinn hafi hrundið af stað byltingu þegar kóngafólkið eyddi öllum sköttunum í þetta.

Sigurboginn er líka stórfenglegur, við eigum reyndar eftir að fara uppí hann.

Louvre byggingin er riiiisastór og svo flott og glæsileg. Ég hlakka líka til að fara inn í það safn.

Champs Elysees iðar líka öll af lífi á kvöldin.

Tour de France fór gegnum borgina í gær, vorum reyndar í Versölum þá.

 

Hótelið er vel staðsett, rétt hjá Louvre og verslunargötunum. En í fyrsta skiptið erlendis er mér alveg sama um búðirnar. Mig langar bara til að labba um og taka þátt í mannlífinu. Hitinn er reyndar svakalegur og maður þreytist fljótt.

 

Það er þráðlaust net á hótelinu þannig að ég ligg bara uppí rúmi með tölvuna mína í fanginu, dauðþreytt eftir labbið. Planið er show á morgun og tívolí á mið. Can’t wait.

Skemmtið ykkur vel heima :D

 

Ragna Parisienne


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þeeeigiðu

Björg:*

Björg (IP-tala skráð) 26.7.2006 kl. 16:06

2 Smámynd: Cerasum

Njóttu hitasvælunnar. Passaðu þig að deyja ekki úr hita;) Hva, 8 dagar í þetta? Trúirðu því? :)

Cerasum, 28.7.2006 kl. 01:39

3 Smámynd: Cerasum

Shit sko! ég get ekki beðið eftir að fá þig!! :D

ragna

Cerasum, 30.7.2006 kl. 16:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband