Var einhvern veginn alltaf að vona að þegar ég vaknaði á morgnanna að mig hefði bara verið að dreyma að ég væri komin heim. Eeeenn....þegar ég vaknaði í dag ákvað á að feisa það að ég væri komin heim. Ég tók upp úr töskunum. Það var ekki skemmtilegt, en það skánaði þó þegar ég kveikti á tölvunni og setti spænsku tónlistina mína á. Franco, maðurinn sem ég bjó hjá, lét mig nefnilega fá einhver spænsk lög áður en ég fór. Þannig að ég get verið í Barcelona í anda. Planið er svo að ná í öll lögin sem voru spiluð á djamminu úti, svo að með smá gleðidjús, þá verður þetta bara alveg eins og úti. Málið er að stilla bara alla ofnana í partýinu á 6, opna gluggana og kveikja á reykelsi, þá er þetta komiðJ
Ég er eiginlega fyrst að fatta núna hvað við höfðum það gott úti og hvað lífið var yndislegt. Hakunama tata, daginn út og inn. Ég skal fara til Barcelona aftur á næsta ári. Svona er að vera ástfangin, þú bara þráir að komast þarna aftur. Ætla að byrja að safna í september, þegar ég er komin heim frá France. Leiðin liggur suður....
Hver kemur með?
Kv. Bára Dís
Flokkur: Bloggar | 28.7.2006 | 01:35 (breytt kl. 01:36) | Facebook
Tenglar
Eldri Myndir
- Grímuball 2005
- Árshátíð Skólafélagsins
- Embó
- Big Ben Bangsi Benni á Öskudaginn
- Trambólín fjör Tekið í júní 2005 á afmælisdag Þórunnar
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú veist að ég er með ;)..og takk fyrir að gefa mér smá af sýklunum þínum :)
Aðalheiður Dögg Finnsdóttir, 28.7.2006 kl. 08:18
ég er mjög svo game, var líka að taka upp úr töskunum. Ég náði mér í follow the leader...mig langaði að fara að gráta þegar ég hlustaði á það, samt er þetta svo hresst lag!
Já takk Bára fyrir þessa sýkla!;)
Gerður Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 28.7.2006 kl. 12:18
Hvað er að. Það er líka gaman í Frakklandi;)
Ragna
Cerasum, 31.7.2006 kl. 12:22
já langar þig ekki geðveikt til að segja mér hver syngur follow the leader?:D
bað Valla að leita að því um daginn, en hann fann það ekki...
Katrín Hjaltadóttir, 3.8.2006 kl. 19:29
Heitir hann ekki William sá sem syngur það? ;)
Cerasum, 5.8.2006 kl. 01:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.