Flugstress

Urður í húddinu

Er ekki frá því að ég sé með smá stressfiðring í maganum. Flugumferðarstjórar og starfsfólk keflavíkur flugvallar e-ð að mótmæla og ég að fljúga út á laugardaginn. Ein í vinnunni var að koma frá London, klst seiknun á leiðinni út og aðrir 2 á leiðinni heim. Málið er að ég hef bara 1 og hálfan á milli fluga í London, svo ef það verður seinkun þá er ég ekkert að komast til Frakklands. Spurning um að bóka bara hótel í London. Reyni að redda þessu á morgun, veit samt ekki hvernig.

Í gærkvöldi skelltum ég og Urður okkur út í sólarlagið og tókum fullt af myndum. Birtan var svo flott og Urður líka.......wrarr....
Rosaleg bongóblíða í dag. Feis á Rögnu. Hlakka samt obboðslega til að sjá þig Ragna......hvað er annars planið að gera þarna? :)

Kv. Bára


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Cerasum

Feis á mig:O Ímyndaðu þér eitt. Ég er nebla ekki að missa af neinu:) ég er í næstum 100% meiri hita en þið en samt er ekki hitabylgja;)

Það er spurning hvert planið er. Ertu að leita eftir relaxation? Eða langar þig til að skoða Frakkland? Ég er persónulega komin með leið á því að skoða alla þessa litlu sætu, gömlu bæi. En finnst alltaf jafn gaman að koma til strandbæjanna með lífinu og búðunum. As in: Cannes, Juan les Pins, St.Tropez, Monte Carlo. Þannig að spurningin er bara hvað vilt þú? Það verður notla að vera stuð, ég veit það. En Villa Lara er best í því að veita slökun með sól og góðum mat og drykk:)

Ragna

Cerasum, 2.8.2006 kl. 21:31

2 Smámynd: Cerasum

Haha, ég er alltaf til í að kíkja eitthvað þar sem er strönd, líf og búðir! Skellum okkur í þannig ferð og svo bara vorka tanið, liggja í lauginni með kokteil og spila badminton, ekki?

Sweet. Kv. Bára

Cerasum, 2.8.2006 kl. 23:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband