Nú fékk ég mig loksins til að blogga.
Við erum semsagt komin suður og erum í húsinu góða. Ein vika liðin hér og hún flaug sko! Shit, það er svo lítið eftir Bára og brósi og co koma eftir tvo daga rúma, það á eftir að líða áður en af er litið. Svo verða þau bara hérna í rúma viku!! Ég fer bara að koma heim
Mig hryllir við tilhugsunina... En ég hlakka samt til að byrja í skólanum..
En við fórum til Cannes á laugardaginn seinasta. Þar borðuðum við á ströndinni um kvöldið, horfðum á flugeldasýninguna sem var mjög flott, fórum á La Chunga (sjá myndir) og gistum. Daginn eftir var farið á jetski! Það var alveg magnað. En djöfulsins harðsperrur fékk ég. Ég var með mömmu aftaná allan tímann og hún var sko hræddari en ég veit ekki hvað.
Svo erum við búin að fara í golf, bara að slá. Og ég hef aldrei verið jafn léleg á ævinni. Ég er að pæla í að hætta að reyna, ég sökka.
Við fórum líka til Juan les Pins í gærkvöldi, eftir að hafa farið í Carrefour að kaupa faxtæki, badminton-kit ofl. Það var mikið fjör í strandbænum, fengum Sex on the Beach (stálum kokteil-seðlinum á barnum og núna eru mamma og Bjarni öll í því að búa til kokteila) og búðirnar opnar til miðnættis. Í dag fórum við svo á resort inní sveitinni, mjög næs.
Ég held ég sé komin með smá lit, allavega svona basetan Nú hef ég ca tvær vikur til að verða eins og skítur. Maður er að vinna í þessu.
En hlakka til að fá þig Bára
Bæææjó
Ragna Sif
Tenglar
Eldri Myndir
- Grímuball 2005
- Árshátíð Skólafélagsins
- Embó
- Big Ben Bangsi Benni á Öskudaginn
- Trambólín fjör Tekið í júní 2005 á afmælisdag Þórunnar
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hey mig langar í Jetski! Ferðin búin þegar ég er ekki einu sinni komin? Haha, ef við troðum okkur saman í svefnpoka þegar við komum heim verðum við eins og Twix ;)
Get í alvörunni ekki beðið. Shit næstum bara 2 dagar!
Kv. Bára
Cerasum, 2.8.2006 kl. 23:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.