Frakkland í fyrramálið :D !

Nú eru 3 og hálfur tími þangað til ég þarf að vakna til að fara út á flugvöll. Þetta verður gífurlegur stemmari, þarf að millilenda í London og þar sem það er svo ótrúlega stutt á milli flugvéla hjá mér er ég bara með handfarangur! Trúi því varla að ég hafi komið öllu sem ég þarf fyrir í eina flugfreyjutösku. Svona er þetta, neyðin kennir naktri konu að spinna;)
Nú er allt fólkið í útilegu og ég ætla að hringja í þau í nótt af flugvellinum og athuga hvort þau viti ennþá hvað þau heiti. Spennandi....
Á flugvellinum ætla ég svo að fjárfesta í eitt stykki Draumalandi eftir Andra Snæ svo ég deyji ekki úr leiðindum í flugvélunum. Ég er svo sniðug.

Ragna = Sjáumst!
Allir hinir = Bæjó!

Kv. Bára Skvís


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

HÆHÆHÆ, það var gaman að tala við þig um nóttina, man samt ekkert eftir að hafa fengið smsið um gaurana með hreiminn!:D Skrítið að þú sért í Frakklandi og að ég geti ekki hitt þig hvenær sem er:( Það er samt gaman hér:D:D

Gerður Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 7.8.2006 kl. 15:20

2 Smámynd: Cerasum

Já hehe ég bjóst nú ekkert við svari þannig séð en ég vissi að þú myndir hlæja þegar þú kíktir á það!!

Hey, þú veist þú mátt alltaf hringja;) Kv. Bára

Cerasum, 10.8.2006 kl. 17:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband